Notkun persónuupplýsinga
Rafræn auðkenning
Þegar notendur bóka langtímaleigu hjá Bílaleigu Kynnisferða ehf. er gerð krafa um auðkenningu með rafrænum skilríkjum til þess að staðfesta hver sækir um. Með auðkenningunni fylgja nafn, kennitala og netfang viðkomandi.
Þessar upplýsingar eru ekki vistaðar innan bókanaferlisins og því þarf notandi að auðkenna sig aftur ef farið er á aðrar síður innan vefsins eða valinn annar bíll til að bóka.
Lánshæfismat
Eftir að notandi hefur gefið samþykki sitt er lánshæfismat viðkomandi kannað með uppflettiþjónustu frá Creditinfo. Niðurstaða uppflettingarinnar er ekki vistuð, en án fullnægjandi lánshæfismats er ekki hægt að ljúka bókun.
Greiðslukort
Upplýsingar um greiðslukort eru sendar greiðsluþjónustu Borgunar/Teya til úrvinnslu. Kortaupplýsingar eru ekki vistaðar í kerfum Bílaleigu Kynnisferða ehf..